Ökunámið
Ökunámið getur hafist við 16 ára aldur. Samkvæmt lögum þá getur þú fengið ökuréttindin á 17 ára afmælisdaginn.
- Velja ökukennara og setja sig í samband við hann. Eftir fyrsta tíma hjá ökukennara þarf að sækja um námsheimild hjá sýslumanni.
- Bóklegt nám í ökuskóla 1 hefst eftir nokkra tíma hjá ökukennara
- Æfingaakstur hefst eftir að Ökuskóla 1 er lokið og að lágmarki 10 tímar hjá ökukennara
- Ökuskóli 2
- Ökuskóli 3 ( ökugerði í Hafnarfirði)
- Undirbúningur fyrir bóklega og verklega prófið í samráði við ökukennara.
- Algengt er að nemendur taki 17 – 25 tíma hjá ökukennara ( lágmarks tímar í bílnum eru 17 samkvæmt námskrá, þar af 15 hjá ökukennara og 2 í Ökuskóla 3)
- Bóklega prófið má taka 2 mánuðum fyrir 17 ára afmælið
- Verklega prófið má taka 2 vikum fyrir 17 ára afmælið