
Hildur Guðjónsdóttir
Ég heiti Hildur Guðjónsdóttir og er ökukennari. Ég útskrifaðist sem ökukennari 2019 frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Ég er einnig framhaldsskólakennari og útskrifaðist frá Kennaraháskóla Íslands árið 2005 og hef starfað sem kennari síðan þá. Ég kenni á Suðurnesjunum.
Ég legg áherslu á að ökunámið sé faglegt, uppbyggilegt og skemmtilegt. Ég legg áherslu á gott samstarf við foreldra og/eða forráðamenn.
Hægt er að ná í mig í síma 849-8366 eða senda mér tölvupóst á netfangið bilprof@bilprof.net.
Verðskrá
Kostnaður ökunámsins getur verið mismunandi. Flestir nemendur taka 15 til 20 tíma hjá ökukennara.
Kostnaður við ökuskólana og prófin greiðist til þeirra. Ökuskóli 1 og 2 er kenndur á nokkrum stöðum og er verðdæmið hér til hliðar miðað við ódýrasta kostinn.
| Verkleg kennsla miðað við 15 ökutíma | 225.000 kr. |
| Verkleg kennsla stakur tími (45 mín) | 15.000 kr. |
| Ökuskóli 1 (verð frá) | 10.800 kr. |
| Ökuskóli 2 (verð frá) | 9.800 kr. |
| Ökuskóli 3 | 53.900 kr. |
| Bóklegt próf | 7.583 kr. |
| Verklegt próf | 19.619 kr. |
| Ökuskírteini | 4.300 kr. |
| Leiga á bíl í prófi | 15.000 kr. |
Kia Stonic
Ég kenni á Kia Stonic, árgerð 2023. Bíllinn er beinskiptur og er þæginlegur og lipur í akstri og hentar vel til kennslu.

Ganglegir tenglar
Samgöngustofa
Á vef samgöngustofu er hægt að æfa sig í að taka ökupróf.
Ökukennarafélag Íslands
Á vefnum er hægt að nálgast fjölbreytt efni.
Myndbönd
Á Youtube hjá Samgöngustofu má sjá mikið af áhugaverðum myndböndum.
Umferðarmerkin
Á vef Samgöngustofu má sjá umferðarmerkin, þau eru flokkuð eftir merkingu þeirra.